Með lífið í lúkunum
HeilsuErla
Podcast
Episodes
Listen, download, subscribe
93. Að týnast í myrkrinu. (Andleg heilsa, áskoranir, sjósund og seigla). Sigurgeir Svanbergsson
Í þættinum ræðir Erla við Sigurgeir Svanbergsson, íslenskan sjósundskappa sem lét ekki veðrið, öldurnar né marglyttur stoppa sig þegar hann lagði upp í eitt stærsta sundævintýri sem hægt er að ímynda sér, að synda yfir Ermasundið. Markmið hans var ekki aðeins að takast á við þessa gríðarlegu áskorun heldur einnig að vekja athygli og safna áheitum fyrir Píeta samtökin, sem vinna ómetanlegt starf í forvarnar- og stuðningsstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða. Við ræddum um undirbúninginn, andlegu hliðina, kvíðann, kuldann, að týnast í myrkrinu og af hverju honum fannst mikilvægt að tengja þetta sund við málefni sem skiptir hann miklu máli. Þetta er viðtal um seiglu, tilgang og manngæsku. Hlaðvarpið er í samstarfi við: 💙 GeoSilica - 15% afsláttur með kóðanum Heilsuerla 🌱 Spíruna - Ekki missa af Sumarsalati HeilsuErlu 🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal 💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar 💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Með lífið í lúkunum RSS Feed
