Með lífið í lúkunum podcast show image

Með lífið í lúkunum

HeilsuErla

Podcast

Episodes

Listen, download, subscribe

107. Óútskýrðir langvinnir verkir. (Verndarkerfi líkamans, næming, öryggi, ótti og aðlögunarhæfni taugakerfisins.) Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur

Í þættinum ræðir Erla við samrýmdu systurnar Thelmu Rut og Heru Rut um óútskýrða langvinna verki. Þær eru báðar sjúkraþjálfarar í fæðingarorlofi og eru saman með námskeiðið Náðu stjórn á verkjum auk þess að vera með ókeypis fræðslu á Hreyfilausnir bæði á Instagram og Facebook. Í þættinum ræða þær um skilgreiningu óútskýrðra langvinnra verkja og hvað er til ráða þegar þeir eru til staðar. Það sem er afar áhugavert er að slíkir verkir eru sjaldan beintengdir skaða heldur mótast af taugakerfinu, ónæmiskerfinu, tilfinningum okkar, hugsunum, fyrri reynslu og aðstæðum í lífinu. Þá getur svefn, næring, hreyfing, félagsleg tengsl okkar og andleg líðan haft mikil áhrif á framgang verkja.  ATH. Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum í þættinum! Þátturinn er unninn í samstarfi við: 💙 -HEILSUHILLUNA. Hefur þú prófað Better You munnúðana? 🌱  -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?  🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Með lífið í lúkunum RSS Feed


Share: TwitterFacebook

Powered by Plink Plink icon plinkhq.com